Taktu þátt í Time to Move viðburðum nálægt þér í október og uppgötvaðu öll ólíku tækifærin til að búa erlendis!
Time to Move er upplýsingaveita sem veitir upplýsingar um rafræna og staðbundna viðburði í þínu nærumhverfi. Eurodesk skipuleggur Time to Move verkefnið í október á hverju ári.
Markmiðið okkar er einfalt: Við viljum ná til ungs fólks í Evrópu, og láta þig vita um öll tækifærin sem eru í boði fyrir þig svo þú getir farið til útlanda að læra og uppgötva eitthvað nýtt.
Ertu að leita að upplýsingum sem henta þér persónulega, eða vilt bara taka þátt í einhverju sniðugu og kynnast nýju fólki? Skoðaðu kortið á síðunni og taktu þátt í gleðinni!
Skipulegðu dvöl þína erlendis!
Þú getur flett upp vefstofum, upplýsingafundum, persónubundinni ráðgjöf, en líka skemmtilegum leikjum utandyra, tónleikum og öðrum viðburðum nálægt þér.
* Ef þú ert meðlimur í Eurodesk og vilt bæta viðburði þínum á kortið, smelltu hér .
Participate in our “Time to Play” polls and quizzes at the @eurodesk Instagram Stories and posts and have the chance to win amazing Eurodesk goodies!
Test your general knowledge of European culture. Every two weeks, a winner will be randomly selected by Eurodesk Brussels Link from those who guessed the answer correctly.
To enter the Contest, contestants must first agree to abide by these rules.
Adventures in Berlin og Mysteries in Riga eru tveir Eurodesk tölvuleikir sem virka eins og „escape room“ þar sem þú þarft vinna með vinum þínum til þess að geta leyst þrautina.
Spilið saman á sitthvorum skjánum og talið saman til að leysa gáturnar.
Alla fimmtudaga í október setjum við nýjan hlaðvarpsþátt í loftið þar sem ung manneskja segir frá reynslu sinni af því að fara til útlanda, upplifun þeirra og góðum ráðum. Við verðum líka með vefstofu þann 16. október til að svara öllum spurningunum ykkar.
Í þættinum verður sagt frá:
Sjálfboðaliðastörf erlendis: Tækifæri til sjálfboðaliðastarfa sem kosta lítið
Nám erlendis: Finndu leiðir til að stunda nám eða skiptinám erlendis!
Vinna erlendis: Launað starfsnám og starfstækifæri til að koma starfsferlinum þínum af stað.
Þátttaka: Styrkir í boði fyrir verkefni og viðburði sem ungt fólk skipuleggur
Það getur verið erfitt að finna áreiðanlegar upplýsingar þegar þú ert á leiðinni út í nám eða verkefni. Þetta er það sem Eurodesk aðstoðar þig með! Ef þú getur ekki mætt á Time to Move viðburð getur þú samt nálgast upplýsingunum á netinu. Við getum einnig veitt sérsniðna ráðgjöf
Flettu í gegnum tengslanet okkar sem samanstendur af 3000 upplýsingamiðstöðvum í 36 evrópskum löndum á eurodesk.eu
Ertu með einhverjar spurningar um tækifæri erlendis? Sendu okkur tölvupóst, skilaboð eða kíktu við á Eurodesk skrifstofuna í þínu landi.
Við erum alltaf að safna nýjustu upplýsingum um alþjóðleg tækifæri sem við setjum á Eurodesk Opportunity Finder.
Flettu í gegnum fimm flokka: nám, sjálfboðastörf, starfsnám, þátttökuverkefni og styrkir – finndu verkefnið sem hentar þér!
Það eru margar ESB áætlanir sem einbeita sér að því að efla ungt fólk.
Á ungmennagáttinni eru upplýsingar frá ESB um það sem þú þarft að vita um Evróputækifæri.
Athugaðu DiscoverEU eða European Solidarity Corps og endilega kíktu á nokkrar greinar sem skrifaðar eru af ungu evrópsku blaðafólki
Get competitive and let your creativity shine!
Allan september og október stendur Eurodesk Network fyrir hönnunarsamkeppni.
Þemað í ár er „vinátta þvert á Evrópu“. Í ár eru þrír flokkar: myndasögur, list gerð með gervigreind, og list gerð án gervigreindar.
Taktu þátt, láttu vini þína kjósa þig og þú getur unnið góðgæti og verðmæt verðlaun, eins og Interrail miða eða teikniborð!
Sigurvegarar í flokkunum þremur fá að sjá sína hönnun prentaða á Time to Move vörurnar á næsta áriThe three final winners will see their designs printed on the Time to Move merchandises next year!
Þessi leikur er skipulagður af Eurodesk Þátttakendur verða að vera á aldrinum 13 til 30 ára til að geta tekið þátt í leiknum, og þau þurfa að vera frá einu af þessum löndum: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Georgía, Grikkland, Holland, Írland, Ísland, Ítalía, Króatía, Kýpur, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Noregur, Norður-Makedónía, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Serbía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Tyrkland, Ungverjaland, Úkraína og Þýskaland. Til þess að taka þátt í keppninni þurfa þátttakendur fyrst að samþykkja þessar reglur.
Hér fyrir neðan finnurðu efni fyrir fjölmiðla, með öllu því sem þú þarft til að kynna Time to Move herferðina.
© 2025 Eurodesk. Öll réttindi áskilin.